Þegar bíllinn þinn bilar þá viltu helst koma honum í viðgerð hjá bifvélavirkja sem kann sitt fag til hlítar. Þegar heilsan bilar skiptir valið enn meira máli.
Maí 17, 2009
Kínversk leikfimi utanhúss á Selfossi
Þann 19. maí næstkomandi hefst hjá Nuddaranum nýtt sex vikna námskeið í kínverskri leikfimi - Qigong - en námskeiðið verður haldið undir beru lofti á Selfossi. Ef veðrið verður einhverja daga okkur andsnúið þá höfum við aðstöðu í Selinu við íþróttavöllinn. Qigong (lesið tsíj gúng) er forn kínversk heilsu- og líkamsrækt sem í seinni tíð hefur notið vaxandi vinsælda á vesturlöndum.
Nýja þríþætta Spa-línan frá FOREVER fæst nú hjá Nuddaranum.is en hún samanstendur af eftirfarandi vörum: Nuddkremi, baðsalti og sturtusápu. Vörunum er ætlað að ná fram slökun og vellíðan án þess að viðkomandi þurfi að yfirgefa heimilið.
Nuddarar þurfa að huga að heilsu sinni líkt og aðrir. Elínborg Högnadóttir í Flóahreppi er nuddfræðingur og hún hefur um hríð verið í nuddi hjá Nuddaranum.is á Selfossi. „Mér finnst hreint út sagt dásamlegt að koma í nudd til Þórunnar, get hreinlega ekki hugsað mér að vera án þess,“ segir Elínborg.
„Ég hef prófað bæði heitsteinanudd og shiatsu hjá Þórunni og í báðum meðferðum upplifði ég mikla fagmennsku og vellíðan. Það er gott að geta talað faglega við nuddarann sinn og fengið hjálp við að velja meðferð sem hentar,“ segir Eygló Linda Hallgrímsdóttir á Selfossi.
Einungis nuddarar með nægilega menntun að baki hafa rétt til inngöngu í viðurkennd fagfélög nuddara sem starfa samkvæmt lögum frá Alþingi. Nuddarinn hróflar við starfsemi líkamans og því afar brýnt að hann hafi að baki nægilega menntun og þekkingu.